Það er greinilegt að yfirvaldið hafi hlustað á mig þar sem að
það hefur verið frábært vetrarveður alla síðustu viku
Pínu snjór
yfir öllu, logn og sól..... bara gæti ekki verið betra........ en
svo ringdi í gær og allur snjórinn fór
En það var gott meðan á
því stóð.
En nú er hið fræga þorrablót Höfðhverfinga afstaðið og ég bíð
spennt eftir smá slúðri af því......hummmm allir sem hafa eitthvað
slúður eru skyldugir til þess að segja frá
En annars er ekki mikið að frétta.... ég á að vera gera
fyrirlestur í skólanum um tíðina eftir stríðsárin í Danmörku....
hljómar mjög spennandi, ég veit
En það góða við hann er að hann
má vera 90 M'ÍNÚTUR.... og þar að auki á dönsku. En ég ætla nú ekki
að hafa hann svona langan.
En nú er mikil afmælisvertíð að byrja.... litli frændi hans
Björns 1. feb., Arnlaug 4., ég 7., litla frænka hann Björns
15. og Jónki bróðir 27. Það er ótrúlegt hvað það eru margir sem
eiga afmæli í þessum annars stutta mánuði. Ég er annars búin að fá
fyrirfram afmælisgjöf frá honum Birni mínum....... hann gaf mér
alveg ÆÐISLEGAN ´síma, nokia 6131
geggjað flottur 
En ég bið að heilsa í bili.... ætli ég verði ekki að reyna að
skrifa eitthvað í þessum fyrirlestri.
Kveðja Heiða